Friday, March 26, 2004

Náði víst ekki að blogga neitt í gær, steinsofnaði fljótlega eftir að ég kom heim úr vinnunni!

Það er annars blessuð blíðan í dag ... mikið væri nú gott að vera kominn til spánar núna. En það eru víst ennþá 2 mánuðir í það :(

Wednesday, March 24, 2004

Jæja, ekki góður dagur í meistaradeildinni .. en þetta er ekki búið enn!

Hef annars lítið að segja, klukkan er núna að verða tíu og ég er að fara að sofa takk fyrir! Svotil nýkominn úr vinnunni, og þarf að vakna aftur til vinnu hálffjögur í nótt, þannig að ég læt þetta bara duga í bili ..... ..

Tuesday, March 23, 2004

jæja, þá er ég farinn að strumpa á þessa síðu aðeins.

krækti mér í flensu um helgina, þannig að ég fór ekki í vinnuna í morgun. Sosum ágætt, þá get ég einbeitt mér aðeins að lærdóminum og klára þessa blessuðu skattaskýrslu!
Jæja

Vaknaði ennþá slappur í morgun, þannig að ég fór ekki í vinnuna. svaf fram til hádegis, og ákvað svo að hrista af mér slenið og strumpa mér í ræktina! Og þar sem ég er nýbúinn að uppgötva BooztBar í kringlunni, var alveg upplagt að skella sér þangað eftir æfingu. Held að þeir mættu samt aðeins endurskoða staðsetninguna sína þarna. Um leið og ég labbaði inn á stjörnutorgið og sá alla hina staðina kom smá hik á mig. Það var mjöööög erfitt að labba fram hjá Subway og McDonalds, og fá sér frekar á BooztBar. Ef þeir væru t.d. hinumegin í kringlunni gæti maður farið þangað án þess að falla fyrir öllum freistingum stjörnutorgsins .. en hvað veit ég sosum!


This page is powered by Blogger. Isn't yours?